Lengjudeildin er hafin af fullum þunga og klárast fyrsta umferð deildarinnar í dag með alls fjórum leikjum. Nokkrir hlutir hvað varða starfslið liða í dag hafa fangað augu og eyru netverja á skemmtilegan og ekki síst spaugilegan hátt.
Í leik Völsungs og Leiknis á Húsavík má finna stórstjörnu úr Bestu deildinni í starfsliði Völsungs. Hallgrímur Mar Steingrímsson er þar á skýrslu sem starfsmaður. Það í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt enda Hallgrímur Húsvíkingur mikill en þó er ekki algengt sjá leikmenn annara liða í starfsliði.
Öllu skondnara er þó að Jón Þór Hauksson hafi verið á skýrslu í leik Vestra og Grindavíkur á Ísafirði. Gefið hefur verið út að hann verði Vestra innan handar í sumar og aðstoði þar Daniel Badu þjálfara liðsins. En Jón Þór er greinilega galdramaður mikill því á sama tíma og leikur Vestra og Grindavíkur fór fram var Jón Þór í útsendingu á Livey að lýsa leik Þróttar og Njarðvíkur í Laugardal og fórst það verk vel úr hendi.
Jón Þór greinilega margt til lista lagt en hvort hann hafi verið með græjurnar með sér og lýst leiknum af varamannabekk Vestra á Ísafirði skal ósagt látið.
Jón Þór Hauksson á skýrslu hjá Vestra en að lýsa Þróttur - Njarðvik. pic.twitter.com/15TuFw8Fno
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) April 25, 2026




