PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
   lau 25. apríl 2026 20:21
Brynjar Óli Ágústsson
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Lengjudeildin
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara gott að vera búinn með fyrsta leik, gott að vera búinn að vinna frysta leik líka, það er frábært. Að mæta nýliðum í fyrsta leik í móti er alltaf 'tricky','' segir Gunnar Heiðar, þjálfari HK, eftir 4-1 sigur gegn Gróttu í 1. umferð Lengjudeildarinnar.


Lestu um leikinn: HK 4 -  1 Grótta

HK lenti undir, en tók svo nánast yfir leikinn og skoruðu fjögur mörk. Gunnar var spurður út í hvað honum fannst um frammistöðuna.

„Bara góð, mér fannst kannski fyrstu korter eða tuttugu smá sviðsskrekkurá okkur. Ég held að það er eðlilegt í fyrsta leik í móti. En þega þeir skoruðu þá fórum við í næsta gír,''

„Þetta er fyrsti mótsleikurinn minn hjá HK og ég er mjög ánægður með strákana og hvernig við erum búnir að æfa í vetur. Við erum búnir að prófa allskonar hluti. Við erum að koma inn okkar stíl inn í þetta og strákarnir eru búnir að taka því alveg hrikalega vel,''

„Markmið okkar er að gera betur en í fyrra. Við vorum grátlega nálægt þessu í fyrra, eða þeir voru grátlega nálægt þessu í fyrra og ég líka. Þannig við erum allir í 'revenge mode', ég get alveg sagt það,''

Gunnar var spurður út í hvort HK liðið sé tilbúið að komast í efstu deild.

„Já klúbburinn er klárlega til í það. Það eru margir góðir leikmenn hérna og margir ungir spennandi leikmenn sem geta klárlega geta spilað í Bestu deild, þannig já ekki spurning.''

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner