25.05.09 - 17:49
Magnús Már Einarsson
Temuri Ketsbaia tekur við Olympiakos (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Temuri Ketsbaia, fyrrum leikmaður Newcastle, hefur verið ráðinn þjálfari grísku meistaranna í Olympiakos.
Ketsbaia tekur við af Ernesto Valverde sem ákvað að hætta eftir að hann var beðinn um að taka á sig launalækkun.
Ketsbaia hætti á dögunum sem þjálfari Anorthosis Famagusta í Kýpur en þar náði hann aðdáunarverðum árangri og kom liðinu meðal annars í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Ketsbaia, sem er 41 árs Georgíumaður, lék eins og fyrr segir með Newcastle hann var einnig á mála hjá Dinamo Tbilisi, Newcastle, Dundee og AEK Athens á ferli sínum sem leikmaður.

Heimild: AP