Fotbolti.net
25.05.09 - 23:18
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Jose Mourinho gerir nýjan samning við Inter (Staðfest)

Jose Mourinho gerir nýjan samning við Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, þjálfari Inter, hefur framlengt samning sinn við félagið til sumarsins 2012.
Þessi 46 ára gamli Portúgali gerði þriggja ára samning við Inter þegar að hann tók við Ítalíumeisturunum síðastliðið sumar.

Mourinho hefur núna framlengt þann samning og þannig bundið enda á orðróm um að hann sé á leið til Real Madrid.

Inter greindi frá nýja samningnum í yfirlýsingu á heimasíðu sinni í kvöld þar sem sagt var að Mourinho vilji halda áfram því verkefni sem er þegar hafið hjá félaginu.

,,Þetta sýnir tengingu við félagið og viljann í að vilja alltaf vinna,\" sagði í yfirlýsingunni.

Inter hefur unnið Serie A fjögur ár í röð en liðinu hefur ekki gengið jafnvel í Meistaradeildinni og í ár tapaði liðið fyrir Manchester United í 16-liða úrslitum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.