25.07.08 - 21:29
Hafliði Breiðfjörð
Paul Robinson til Blackburn (Staðfest)

Robinson í leik með enska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Robinson í leik með enska landsliðinu.

Mynd: Getty Images
Paul Robinson markvörður Tottenham og enska landsliðsins er genginn í raðir Blackburn Rovers. Kaupverðið var 3,5 milljónir punda og Robinson hefur skrifað undir fimm ára samning við Blackburn.
Robinson sem er 28 ára gamall átti erfiða leiktíð og missti sæti sitt í byrjunarliði Tottenham og enska landsliðsins.
Í síðasta mánuði keypti Juande Ramos stjóri Totttenham svo brasilíska markvörðinn Heurelho Gomes frá PSV Eindhoven og þá varð ljóst að Robinson væri á förum.
Hjá Blackburn leysir Robinson stöðu Brad Friedel sem er við það að ganga í raðir Aston Villa.
Robinson er fyrstu kaup Paul Ince hjá Blackburn síðan hann tók við stjórn liðsins nú nýlega.

Heimild: BBC