Fotbolti.net
25.07.26 - 12:17
Brynjar Ingi Erluson

Derhúfa Ferran vakti lukku hjá Trump - „Fallega gert af honum“

Ferran með derhúfuna í fögnuðinum á Spáni

Ferran með derhúfuna í fögnuðinum á Spáni

Canon

Mynd: Instagram

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þakkað Ferran Torres fyrir virðingarvott sem vakti mikla athygli í fögnuði nýkrýndra heimsmeistara Spánar.
Ferran skoraði sigurmark Spánar í 1-0 sigrinum á Argentínu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Hann þrumaði boltanum í þaknetið úr miðjum vítateignum í framlengingu og tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn.

Í fagnaðarlátunum í Madríd daginn eftir sást Ferran með rauða derhúfu sem á stóð: „Make Spain Great Again.“ Slagorðið er augljós vísun í „Make America Great Again“, sem Donald Trump notaði í kosningabaráttu sinni árið 2016.

Trump leit á húfuna sem virðingarvott og þakkaði Ferran fyrir.

„Hann er frábær leikmaður. Ég leit á þetta sem fallegan virðingarvott og held að hann hafi gert þetta af góðum hug. Við kunnum virkilega að meta það. Þetta var fallega gert og mikið hrós fyrir okkur,“ sagði Trump.

Hvíta húsið deildi einnig mynd af Ferran á X og skrifaði við hana: „Allir vilja taka þátt í hreyfingunni.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.