25.07.26 - 12:51
Brynjar Ingi Erluson
Man City ætlar að bjóða í Diomande

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester City ætlar að bjóða 100 milljónir evra í Yan Diomande, leikmann RB Leipzig í Þýskalandi. Þetta segir Florian Plettenberg hjá Sky.

TENGT EFNI
Leipzig hafnaði risatilboði frá Real Madrid
Talsverður hiti er færður í kapphlaupið um Yan Diomande, sem er 19 ára gamall vængmaður.
Diomande fór á kostum á nýafstöðnu tímabili með þýska félaginu og sýndi einnig hvað í honum býr með Fílabeinsströndinni á heimsmeistaramótinu í sumar.
Liverpool og Paris Saint-Germain voru lengi vel fremst í kapphlaupinu og Diomande náði munnlegu samkomulagi við PSG um eigin kjör. Franska félaginu hefur hins vegar ekki tekist að semja við Leipzig og reynir enn að fá þýska félagið til að lækka verðmiðann, sem er talinn vera á bilinu 120 til 130 milljónir evra.
Real Madrid blandaði sér í baráttuna í gær og lagði fram tilboð upp á 90 milljónir evra, auk tíu milljóna í mögulegar bónusgreiðslur. Leipzig hafnaði tilboðinu en viðræður félaganna halda áfram.
Manchester City er nú einnig komið í myndina. Samkvæmt Florian Plettenberg hefur enska félagið gefið Leipzig til kynna að það sé reiðubúið að bjóða 100 milljónir evra í Diomande. Formlegt tilboð hefur ekki enn borist en félögin hafa átt jákvæðar viðræður.
Diomande hefur því úr nægu að velja og allt stefnir í að hann yfirgefi Leipzig í sumar, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnarmanna félagsins um hið gagnstæða.