Ágúst Eðvald Hlynsson var hetja Víkinga þegar liðið lagði Grindavík að velli við erfiðar aðstæður í Pepsi Max-deildinni í kvöld. Hann skoraði sigurmarkið þegar 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 0 Grindavík
„Ég er gríðarlega sáttur að hafa lokað þessum þremur stigum. Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur og mjög mikilvægt upp á framhaldið," sagði Ágúst eftir leikinn.
Víkingar eru núna fjórum stigum frá fallsæti.
„Við eigum ekki að horfa niður, við eigum bara að horfa upp. Það eru fjórir leikir eftir og við þurfum að fara að tengja saman sigra."
Hvernig tilfinning var að sjá boltann í netinu?
„Það var mjög sætt. Ég klúðraði dauðafæri í fyrri hálfleik og ætlaði að bæta upp fyrir það. Ég var mjög sáttur að hafa náð að skora í lokin."
VIðtalið er hér að ofan.
Athugasemdir