David Moyes, stjóri West Ham, mun missa af næstu tveimur leikjum liðsins eftir að hafa greinst með kórónaveiruna í vikunni.
Moyes greindist aftur með smit í öðru prófi sem hann fór í núna fyrir helgi.
Moyes greindist aftur með smit í öðru prófi sem hann fór í núna fyrir helgi.
Issa Diop og Josh Cullen, leikmenn West Ham, eru einnig með veiruna.
Moyes og leikmennirnir verða fjarri góðu gamni í leiknum gegn Wolves um helgina og í leiknum gegn Everton í enska deildabikarnum á miðvikudaginn.
Moyes er staddur heima hjá sér í einangrun en hann ræðir við þjálfarateymi sitt og leikmenn í gegnum samskiptaforritið Zoom fyrir leik helgarinnar.
Athugasemdir