Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. september 2021 12:45
Brynjar Ingi Erluson
Fati snýr aftur í hóp Barcelona eftir tíu mánaða fjarveru
Ansu Fati
Ansu Fati
Mynd: Getty Images
Spænski táningurinn Ansu Fati verður í hópnum hjá Barcelona sem mætir Levante í spænsku deildinni á morgun en þetta er fyrsti leikur hans í tíu mánuði.

Fati meiddist á hné í nóvember á síðasta ári og var búist við að hann yrði frá í fjóra mánuði.

Það komu þó upp erfiðleikar í endurhæfingunni og missti hann af restinni af tímabilinu.

Nú, tíu mánuðum síðar, er hann að mæta aftur á völlinn en hann er í hópnum í gegn Levante á morgun.

Fati er einn efnilegasti knattspyrnumaður heims og hefur verið síðustu ár en hann tók við treyjunúmeri Lionel Messi er hann yfirgaf Börsunga og samdi við Paris Saint-Germain.
Athugasemdir
banner
banner
banner