Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. október 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Fjölnir 
Herra Fjölnir hættur - Fjölnir leitar að yfirþjálfara yngri flokka
Gunnar Már Guðmundsson.
Gunnar Már Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Már Guðmundsson, Herra Fjölnir, er hættur sem yfirþjálfari hjá félaginu. Hann mun þó áfram sinna starfi sínu sem þjálfari 4. flokks karla. Fjölnir er í leit að nýjum yfirþjálfara yngri flokka hjá félaginu.

„Gunni hefur verið viðloðinn félagið sem iðkandi eða starfsmaður í tæp 30 ár. Það verður því ónetjanlega mikil eftirsjá af honum. Hann er svo sannarlega Fjölnismaður í húð og hár," segir í frétt á fjolnir.is.

„Við þökkum honum kærlega fyrir vel unnin störf í hlutverki yfirþjálfara og óskum honum velfarnaðar í komandi verkefnum."

Fjölnir leitar að yfirþjálfara yngri flokka:

Knattspyrnudeild Fjölnis leitar að kraftmiklum leiðtoga í yfirþjálfarastarf til að bætast í hóp knattspyrnudeildar. Viðkomandi heyrir undir Barna- og unglingaráð og stjórn knattspyrnudeildar. Fjölnir hvetur fólk óháð kyni að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
-Stefnumótun og yfirumsjón með þjálfun og þjálfurum
-Yfirumsjón með uppeldisstarfi og afreksþjálfun
-Skipulagning á æfingatöflum í samstarfi við núverandi yfirþjálfara
-Skipulagning og verkaskipting aðstoðarþjálfara
-Þjálfun eins til tveggja flokka samhliða hlutverki yfirþjálfara
-Fylgjast reglubundið með leikjum allra flokka og leiðbeina þjálfurum í faglegu starfi
-Yfirumsjón með knattspyrnu- og tækniskóla félagsins á sumrin
-Reglulegir samráðsfundir með þjálfurum yngri flokka
-Reglulegir stöðufundir með barna- og unglingaráði

Menntunar- og hæfnikröfur
-UEFA-A þjálfaragráða er skilyrði eða þarf að vera í ferli
-KSÍ Afreksþjálfun Unglinga (UEFA Elita A Youth) þjálfaragráða
-Reynsla af þjálfun nauðsynleg
-Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar
-Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, drifkraftur og frumkvæði
-Sjálfstæði í starfi og hæfileiki til að vinna með öðrum
-Hæfileiki til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
-Brennandi áhugi á knattspyrnu
-Hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veita Sævar Reykjalín, formaður BUR, í síma 858-8173 eða á netfanginu [email protected] og Arngrímur Jóhann Ingimundarson, yfirþjálfari, í síma 696-3846 eða á netfangið [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 31. október. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir með ferilskrá og kynningarbréfi óskast sent á netfangið [email protected]

https://fjolnir.is/2021/10/21/starfskraftur-oskast-i-knattspyrnudeild/
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner