Fotbolti.net
25.11.08 - 08:14
Hafliði Breiðfjörð

Elías Ingi og Viðar Örn Kjartansson til ÍBV (Staðfest)

Viðar Örn Kjartansson og Elías Ingi Árnason í búningi ÍBV.

Viðar Örn Kjartansson og Elías Ingi Árnason í búningi ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV fékk um helgina góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Landsbankadeildinni næsta sumar þegar Elías Ingi Árnason og Viðar Örn Kjartansson gengu í raðir félagsins. Leikmennirnir skrifuðu báðir undir tveggja ára samning við félagið.
Elías Ingi Árnason er 25 ára gamall framherji sem kemur til ÍBV frá ÍR þar sem hann hefur leikið undanfarin fjögur tímabil. Hann vakti mikla athygli í sumar þegar hann skoraði 21 mörk í 19 leikjum í 2. deildinni og stóð að lokum uppi sem markakóngur deildarinnar auk þess sem hann var valinn í lið ársins.

Viðar Örn Kjartansson er 18 ára gamall Selfyssingur. Hann hefur allan sinn feril leikið með Selfossi og hefur lengi vakið athygli fyrir frammistöðu sína. Viðar sem er framherji skoraði 8 mörk í 22 leikjum fyrir Selfoss í 1. deildinni í sumar. Að tímabilinu loknu var hann svo valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar af þjálfurum og fyrirliðum í deildinni á hófi Fótbolta.net.

Rætt verður við Viðar Örn og Elías Inga í viðtölum hér á Fótbolta.net í dag auk þess sem rætt verður við Heimir Hallgrímsson þjálfara liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.