25.11.08 - 10:33
Hafliði Breiðfjörð
Kristrún Kristjánsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)
Gunnhildur Yrsa framlengdi til 2011

Kristrún Kristjánsdóttir í leik með Fjölni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnhildur Yrsa í leik með Stjörnunni.

Stjarnan bætti við sig enn einum leikmanninum í dag þegar Kristrún Kristjánsdóttir gekk í raðir félagsins frá Fjölni og gerði samning við félagið til ársins 2011.
Þá framlengdi Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir einnig samningi sínum við félagið til 2011.

Kristrún Krisjtánsdóttir er tvítug. Hún hefur átt fast sæti í liði Fjölnis undanfarin ár og lék 17 leiki með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar auk þriggja bikarleikja. Hún hefur í heildina leikið 87 leiki fyrir liðið í deild og bikar og skorað í þeim átta mörk.
Hún hefur leikið með meistaraflokki síðan árið 2002 er hún kom inná sem varamaður í bikarleik með Fjölni gegn FH í sínum fyrsta meistaraflokksleik.
Hún var í æfingahópi íslenska landsliðsins í haust og hefur leikið með U19 og U17 ára landsliðum Íslands.
Hún er fjórði leikmaðurinn sem kemur til félagsins frá því tímabilinu lauk því áður hafði Hrefna Huld Jóhannesdóttir komið frá KR og þær Íris Ósk Valmundsdóttir og Helga Franklínsdóttir frá Fjölni.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er tvítugur framherji. Hún lék 17 leiki með Stjörnunni í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk.
Hún þótti standa sig það vel með liðinu í sumar að Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari valdi hana í landsliðshópinn sem æfði fyrir leikina gegn Slóveníu og Grikklandi í undankeppni EM 2009 í júní. Hún var svo aftur í æfingahópi landsliðsins í haust.
Hún hefur í heildina leikið 63 leiki fyrir uppeldisfélag sitt, Stjörnuna, í deild og bikar og hefur skorað í þeim ellefu mörk.
Hún hefur leikið með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.