25.11.08 - 12:44
Hafliði Breiðfjörð
Vilberg Marino og Viðar Jónssson taka við Leikni F (Staðfest)

Frá undirskrift samninganna.

Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði

Frá undirskrift samninganna.

Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði
Viðar Jónsson og Vilberg Marino Jónsson hafa verið ráðnir þjálfarar meistaraflokks karla hjá Leikni Fáskrúðsfirði og taka við starfinu af Páli Guðlaugssyni sem í gær var ráðinn knattspyrnustjóri Fjarðabyggðar.
Frá þessu var greint á vefsíðu Leiknis í gærkvöld en Vilberg Marino og Viðar þekkja vel til hjá félaginu.
Vilberg var þjálfari liðsins árin 2005-2007 og á sama tíma þjálfaði Viðar meistaraflokk kvenna hjá félaginu. Þeir hafa einnig þjálfað yngri flokka félagsins um nokkurra ára skeið.
Þeir munu taka til starfa 1. janúar á næsta ári og fyrsta mánuðinn munu þeir vinna með Páli Guðlaugssyni sem auk þess að vera knattspyrnustjóri hjá Fjarðabyggð mun þjálfa sameinaðan annan flokk karla hjá Fjarðabyggð/Leikni.

Heimild: Vefsíða Leiknis Fáskrúðsfirði