25.11.08 - 15:45
Gunnar Gunnarsson
Heiðar Helguson til Queens Park Rangers (Staðfest)
loksins náðist að semja um félagaskiptin

Heiðar Helguson fagnar hér marki sem leikmaður Bolton en kominn í herbúðir QPR fram að áramótum í það minnsta

Mynd: Getty Images

Heiðar Helguson landsliðsmaður Íslands og leikmaður Bolton hefur loksins náð að semja um félagaskipti sín yfir í QPR.
Mikil óvissa hefur ríkt í kringum þetta samningaferli hjá Heiðari en núna virðist allt vera orðið klappað og klárt og staðfesti Dalvíkingurinn knái í samtali við Morgunblaðið að hann sé búinn að skrifa undir samning við enska 1. deildarliðið Queens Park Rangers og gildir samningurinn til áramóta.
Ákvæði eru í samningnum að QPR geti samið við Heiðar til frambúðar ef þeim líst vel á kappann en ekki munaði miklu að Charlton næði að klófesta pilt.

,,Ég er ansi feginn að það sé loks kominn niðurstaða í þetta mál. Samningurinn gildir til 1. janúar en það eru ákvæði í honum sem segja að ég geti gert samning til frambúðar eftir að lánssamningnum lýkur. Bolton vildi bara að ég færi til liðs sem hefði ráð á því að kaupa mig og í tilviki Charlton var ekki um það að ræða,\" sagði Heiðar í samtali við mbl.is
Forvitnilegt verður að vita hvort Heiðar Helguson verði í leikmannahópi Queen Park Rangers en liðið tekur einmitt á móti Charlton í Coca-Cola Championschip deildinni í kvöld.

Heimild: Morgunblaðið