Fotbolti.net
25.11.09 - 17:13
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Javier Chevanton til Atalanta á láni (Staðfest)

Javier Chevanton til Atalanta á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Atalanta hefur náð samkomulagi um að fá framherjann Javier Chevanton á láni frá Sevilla þegar að félagaskiptaglugginn opnar 1.janúar.
Chevanton, sem er frá Úrúgvæ, mun fara til Atalanta á láni út þetta tímabil.

Chevanton er aftarlega í goggunarröðinni hjá Sevilla en Luis Fabiano, Fredi Kanoute, Alvaro Negredo og Arouna Kone eru allir á undan honum í liðið.

Með því að fara til Atlanta vonast Chevanton til að fá að spila meira þannig að hann eigi möguleika á að vera í hópnum hjá Úrúgvæ á HM næsta sumar.

,,Ég er með markmið og það er að spila HM á næsta ári með úrúgvæska landsliðinu, það er ástæða þess að félagaskiptin til Atalanta eru mikilvæg fyrir mig,\" sagði Chevanton.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.