25.12.24 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Carlos Corberan tekinn við Valencia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænski þjálfarinn Carlos Corberan hefur verið ráðinn þjálfari Valencia í La Liga.
Valencia lét Ruben Baraja taka poka sinn á dögunum og hefur Corberan nú verið ráðinn í hans stað.
Spænska félagið virkjaði kaupákvæði í samningi Corberan við enska B-deildarfélagið WBA og hafa bæði félög nú staðfest vistaskipti þjálfarans.
Corberan skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning eða til 2027.
Hann kemur aftur á heimaslóðir en hann er uppalinn í Cheste, sem er í Valencia-héraði. Hann var aðstoðarmaður Marcelo Bielsa hjá Leeds en tók síðar við Huddersfield Town og Olympiakos áður en hann var ráðinn til WBA árið 2022.
Á síðasta tímabili fór hann með WBA í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildina en datt út í undanúrslitum.
Corberan tekur við löskuðu liði Valencia sem er í næst neðsta sæti La Liga með 15 stig.

Official statement | Carlos Corberán
— Valencia CF (@valenciacf_en) December 25, 2024
Welcome to Valencia CF, Carlos! ????
???? https://t.co/pYEWBwI5Ux#BenvingutCorberán #VCFDNA pic.twitter.com/Kj1KSw80gS
La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 12 | +35 | 33 |
| 2 | Real Madrid | 12 | +21 | 30 |
| 3 | Atletico Madrid | 12 | +13 | 28 |
| 4 | Betis | 12 | +5 | 26 |
| 5 | Real Sociedad | 12 | +1 | 22 |
| 6 | Sevilla | 12 | -2 | 18 |
| 7 | Athletic | 11 | +4 | 16 |
| 8 | Villarreal | 12 | +2 | 15 |
| 9 | Deportivo | 12 | +1 | 15 |
| 10 | Racing Santander | 12 | -13 | 14 |
| 11 | Celta | 12 | 0 | 13 |
| 12 | Alaves | 12 | -2 | 13 |
| 13 | Espanyol | 12 | -1 | 12 |
| 14 | Vallecano | 11 | -6 | 12 |
| 15 | Getafe | 12 | -10 | 12 |
| 16 | Osasuna | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Levante | 12 | -5 | 11 |
| 18 | Elche | 12 | -6 | 10 |
| 19 | Valencia | 12 | -12 | 9 |
| 20 | Malaga | 12 | -14 | 5 |