Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fim 26. janúar 2023 11:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Neville: Antony er of fyrirsjáanlegur
Mynd: Getty Images
Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports og fyrrum leikmaður Manchester United, sagði sína skoðun á Antony eftir sigur United gegn Nottingham Forest í deildabikarnum í gær.

Kantmaðurinn var keyptur á 95 milljónir evra frá Ajax í sumar og hefur skorað fimm mörk í 20 leikjum með United. Hann á enn eftir að leggja upp mark fyrir samherja sína.

„Ég hef hugsað mikið um Anthony síðustu daga. Eins og Riyad Mahrez, þá verður hanna að geta farið í báðar áttir. Þessa stundina er hann of fyrirsjáanlegur, reynir alltaf að þvinga boltann yfir á vinstri fótinn," sagði Neville.

Antony var í byrjunarliði United í gær sem vann 3-0 sigur í fyrri undanúrslitaleik liðanna. Seinni leikurin fer fram í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner