26.02.10 - 15:03
Hafliði Breiðfjörð
Sandra Björk Sigþórsdóttir í FH (Staðfest)

Sandra Björk Sigþórsdóttir.

Mynd: Höttur

Sandra Björk Sigþórsdóttir.

Mynd: Höttur

Sandra Björk Sigþórsdóttir er gengin í raðir FH frá Grindavík og skrifaði undir samning við Hafnarfjarðarliðið í gær.
Sandra er að austan og hefur stærstan hluta ferilsins spilað með Hetti á Egilsstöðum. Um tíma var hún hjá Fylki og lék 11 leiki með Fylki árið 2006.
Undir lok tímabilsins í fyrra skipti hún úr Hetti í GRV og náði að spila 2 leiki með GRV í Pepsi-deildinni.
Sandra hefur æft og spilað með FH í vetur og staðið sig vel. Hún skoraði meðal annars þrjú mörk í sigri á Aftureldingu í Faxaflóamótinu á þriðjudaginn.
FH eru nýliðar í Pepsi-deild kvenna á komandi leiktíð og hefur verið að styrkja liðið.
Áður höfðu Portúgalirnir Liliana Martins og Joana Pavao komið til liðsins frá ÍR, Elsa Petra Björnsdóttir frá Fylki auk þess sem Silja Þórðarsdóttir sneri aftur eftir árs dvöl í útlöndum.