Fotbolti.net
26.02.10 - 16:17
Magnús Már Einarsson

Shunsuke Nakamura til Yokohama (Staðfest)

Nakamura hefur verið á bekknum í allan vetur.

Nakamura hefur verið á bekknum í allan vetur.

Canon

Mynd: Getty Images

Japanska félagið Yokohama F-Marinos hefur fengið miðjumanninn Shunsuke Nakamura á láni frá Espanyol.
Nakamura yfirgaf Celtic síðastliðið sumar og gekk til liðs við Espanyol en á sama tíma hafnaði hann tilboði frá Yokohama.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur átt fast sæti á varamannabekk Espanyol í vetur og því ákvað hann að stökkkva á tækifærið þegar að uppeldisfélagið Yokohama kom og bauð honum að koma á láni núna.

Nakamura vonast til að fá að spila með Yokohama á næstunni til að komast í leikform fyrir HM í sumar þar sem að hann verður í eldlínunni með Japönum.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.