26.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Magnús Þór Magnússon til Tornado Målöy (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Þór Magnússon fyrrum markvörður Víkings R. hefur samið við norska 3.deildarliðið Tornado Målöy.
Einn Íslendingur er þegar hjá liðinu en Elmar Dan Sigþórsson kom til félagsins frá KA fyrr í vetur.
Magnús Þór hefur gert tveggja ára samning við Tornado Målöy en hann hefur einnig fengið vinnu í Noregi samhliða fótboltanum.
Magnús Þór, sem verður 26 ára á þessu ári, lék með Víkingi sumarið 2007 en í fyrra var hann í fríi frá fótbolta.
Hann hefur dvalið í Noregi undanfarnið þar sem hann hefur æft með liði Tornado Målöy og leikið æfingaleiki.