Fotbolti.net
26.03.09 - 19:48
Magnús Már Einarsson

Þórarinn Máni í Þrótt (Staðfest)

Þórarinn Máni í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Þórarinn Máni Borgþórsson, miðjumaður úr Hetti, hefur gengið í raðir Þróttara og fær leikheimild með félaginu á morgun. Til stóð að hann yrði í leikmannahópi liðsins gegn FH í Lengjubikarnum í kvöld en leikheimildin náðist ekki í gegn í tæka tíð.
Á síðustu leiktíð skoraði þessi 23 ára gamli leikmaður fjögur mörk í tuttugu leikjum með Hetti í annarri deildinni.

Þórarinn Máni er uppalinn hjá Hetti en hann lék með Aftureldingu sumarið 2004.

Eftir að hafa leikið með Huginn árið 2005 fór Þórarinn að nýju í Mosfellsbæinn þar sem hann lék með Aftureldingu 2006 og 2007.

Þórarinn Máni er annar leikmaður Hattar sem kemur til Þróttar í vetur en áður hafði danski markvörðurinn Henrik Bödker farið sömu leið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.