26.03.12 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Örn til Skedsmo FK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Örn Óasson, miðjumaður KR, hefur gengið til liðs við Skedsmo FK í norsku 3. deildinni.
Ásgeir Örn skoraði eitt mark í átta leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar áður en hann fór til Osló í hagfræðinám.

Í kjölfarið gekk þessi 24 ára gamli leikmaður til liðs við Ullensaker/Kisa sem vann sér sæti í næst efstu deild síðastliðið haust.
Ásgeir hefur núna skipt yfir í Skedsmo en liðið er í 2. riðli 3. deildar og mætir varaliði Lørenskog í fyrstu umferðinni 14. apríl. Fimm dögum fyrr leikur félagið við Frognerparken í 1. umferð undankeppni norsku bikarkeppninnar.
Í augnablikkinu eru leikmenn Skedsmo í æfingabúðum í Tyrklandi en síðastliðinn föstudag gerði félagið 2-2 jafntefli við Grorud sem leikur í 2. deild. Ásgeir lék fyrri hálfleikinn í þeim leik.

Heimild: Heimasíða KR