Fotbolti.net
26.03.12 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Tveir Englendingar í Tindastól (Staðfest)

Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Tindastóls.

Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Tindastóls.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Tindastóll hefur fengið liðsstyrk fyrir baráttuna í fyrstu deildinni í sumar en Ben J Everson og Dominic Furness hafa gengið til liðs við félagið.

Ben, sem er sóknarmaður, ólst upp hjá Middlesbrough en hefur undanfarin tvö ár leikið í Bandaríkjunum við góðan orðstír.
Dominic getur leikið margar stöður á vellinum en Tindastólsmenn hugsa hann sem miðjumann. Dominic er líkt og Ben uppalinn hjá Middlesbrough en hann lék síðast í Bandaríkjunum.

Hann er bróðir kantmannsins Theo Furness sem lék með Tindastóli síðari hlutann á síðasta tímabili. Theo lék vel með Tindastóli þá og hann mun áfram leika með liðinu í sumar.

Theo er væntanlegur til Íslands í fyrri hluta apríl en bróðir hans Dominic kemur eftir að skóla lýkur í Bandaríkjunum í maí. Ben kemur síðan til Íslands í kringum 20. apríl.

Þá er ljóst að miðjumaðurinn Magnús Örn Þórsson mun leika með Tindastóli í sumar. Magnús hefur leikið með Stólunum í Lengjubikarnum að undanförnu en hann kemur frá Val. Í fyrra var Magnús á láni hjá Njarðvík í annarri deildinni.

,,Þetta eru mjög sterkir leikmenn sem munu koma með mikil gæði inn í hópinn. Þessir leikmenn geta spilað margar stöður á vellinum og við bindum miklar vonir við að þeir munir efla okkar hóp,\" sagði Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Tindastóls við Fótbolta.net í dag.

,,Það er okkar von þeir strákar sem við eigum fyrir taki samkeppninni fagnandi og bæti sig enn frekar. Við væntum þess að styrkja hópinn meira en það mun skýrast á næstu dögum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.