26.03.12 - 20:18
Brynjar Ingi Erluson
Claudio Ranieri rekinn frá Inter (Staðfest)

Claudio Ranieri

Mynd: Getty Images

Claudio Ranieri

Mynd: Getty Images
Inter Milan frá Ítalíu hefur rekið ítalska þjálfarann Claudio Ranieri frá félaginu, en frá þessu var greint í kvöld.
Massimo Moratti, forseti Inter greindi frá því eftir 2-0 tap liðsins gegn Juventus í gær að Ranieri myndi fá að stýra liðinu í það minnsta út tímabilið, en svo virðist sem að það sé ekki á plönunum.
Ranieri var látinn taka poka sinn í kvöld eftir afleitt tímabil með Inter. Liðið situr í áttunda sæti deildarinnar með 41 stig og er sjö stigum frá Meistaradeildarsæti. Þá féll liðið úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fyrir franska liðinu Marseille.
Andrea Stramaccioni, þjálfari varaliðsins, tekur tímabundið við liðinu eða þangað til Moratti hefur fundið arftaka Ranieri.
Óvíst er hver kemur til með að taka við Inter eftir tímabilið, en Fabio Capello, fyrrum þjálfari enska landsliðsins hefur verið orðaður við stöðuna.