26.04.12 - 13:32
Magnús Már Einarsson
Arnar Darri í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Darri Pétursson, markvörður U21 árs landsliðs Íslands, hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Stjörnuna á nýjan leik en þetta kemur fram á bold.dk í dag.
Arnar Darri hefur sig lausan frá danska félaginu SønderjyskE en hann hefur verið þar síðan árið 2009.
Lengi vel var Arnar Darri varamarkvörður hjá SønderjyskE en eftir að félagið fékk Kenneth Stenild frá Horsens var hann orðinn þriðji markmaður.
Arnar Darri, sem er 21 árs, lék með yngri flokkum Stjörnunnar áður en hann fór til Lyn í Noregi árið 2008.
Arnar Darri mun berjast við Ingvar Jónsson um markvarðarstöðuna hjá Stjörnumönnum.
Hann gæti leikið sinn fyrsta leik með Stjörnunni annað kvöld þegar liðið mætir KA í æfingaleik í Þorlákhsöfn.

Heimild: Bold.dk