Fotbolti.net
26.04.12 - 20:30
Daníel Freyr Jónsson

Ivica Olic til Wolfsburg í sumar (Staðfest)

Ivica Olic til Wolfsburg í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Króatinn Ivica Olic mun ganga til liðs við Wolfsburg á frjálsri sölu frá FC Bayern í sumar.
Olic, sem er 32 ára, hefur verið hjá Bayern síðan árið 2009. Þar áður hafði hann meðal annars leikið með HSV og CSKA Moscow. 



,,Það er satt að ég hef skrifað undir samning við Wolfsburg. Ég er mjög ánægður með það og hef tilkynnt forráðamönnum Bayern um ákvörðun mína,\" sagði Olic við þýska dagblaðið Bild.



Talið er að Olic muni þéna um sex milljónir evra á ári hjá Wolfsburg, sem hafði betur í samkeppni við Lazio um undirksrift hans. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.