Fotbolti.net
26.04.12 - 16:48
Daníel Freyr Jónsson

Dante til FC Bayern (Staðfest)

Dante í leik með Borussia Monchengladbach.

Dante í leik með Borussia Monchengladbach.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Varnarmaðurinn Dante mun ganga til liðs við FC Bayern frá Borussia Monchengladbach í sumar.
Bayern hefur lengi verið orðað við hinn 28 ára gamla Brasilíumann. Hann spilar sem miðvörður og hefur verið hjá Monchengladbach síðan árið 2009.



,,Bayern er eitt af þremur eða fjórum stærstu félögum heims. Ég fæ núna möguleikann á að spila á æðsta stigi fótboltans," sagði Dante, en hann lék áður með Standard Liege í Belgíu.



Gladbach gerðu allt sem þeir gátu til að halda mér og ég er leiður yfir því að fara. Hinsvegar er ég orðinn 28 ára og ég vildi taka þetta skref."



Bayern á enn eftir að staðfesta kaupin og ekki er vitað hve mikið félagið greiðir fyrir leikmanninn, eða hve langur samningur hans verður.



Í samningi hans hjá Gladbach var hinsvegar klásúla upp á að hann gæti farið fyrir 4,7 milljónir evra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.