26.04.12 - 20:09
Magnús Már Einarsson
Baldur Bett og Árni Freyr í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Baldur Bett er genginn til liðs við Reynismenn.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Reynir Sandgerði hefur fengið liðsstyrk fyrir aðra deildina í sumar en Baldur Bett og Árni Freyr Ásgeirsson eru komnir til félagsins.
Baldur er reyndur miðjumaður en hann ákvað að taka sér frí frá fótbolta síðastliðið haust eftir að hafa leikið með Fylki í tvö ár.

Baldur, sem er 32 ára, lék með FH frá 2001-2006 en hann lék síðan þrjú tímabil með Val áður en hann fór í Fylki.
Árni Freyr er tvítugur markvörður en hann kemur til Reynismanna á láni frá Keflvíkingum.
Árni hefur verið varamarkvörður Keflvíkinga undanfarin ár en hann lék þrjá leiki í Pepsi-deildinni sumarið 2010.
Keppni í 2. deildinni hefst 11. maí næstkomandi en Reynismenn fá HK í heimsókn í fyrstu umferð.