Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Miklar breytingar gætu orðið á Man Utd í sumar, Liverpool hefur áhuga á Abde Ezzalzouli, Reijnders gæti verið á förum frá Man City. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.
Arsenal er í viðræðum við hinn 26 ára gamla Maxi Araujo, leikmann Sporting, en félagið fær samkeppni frá Man City og Man Utd. (Record)
Manchester United gæti leyft allt að 13 leikmönnum að yfirgefa Old Trafford í sumar þar sem INEOS hyggst gera miklar breytingar á leikmannahópnum. (Express)
United hefur bætt Ederson, 26, leikmanni Atalanta á óskalistann. (Talksport)
Það er áhugii á Tijjani Reijnders, 27, úr úrvalsdeildinni og annars staðar í Evrópu eftir erfitt fyrsta tímabil hjá Man City. (Calciomercato)
Liverpool er tilbúið að borga 60 milljónir evra fyrir Abde Ezzalzouli, 24, vængmann Real Betis. (Fichajes)
Lucas Bergvall, 20, ætlar að hafna Chelsea og Aston Villa til að vera áfram hjá Tottenham ef liðið heldur sér uppi í úrvalsdeildinni. (Football Insider)
Arsenal er að fylgjast með Endrick, sem er á láni hjá Lyon frá Real Madrid, og gæti gert tilboð í þennan 19 ára gamla Brasilíumann í sumar ef er ekki inn í myndinni hjá Real Madrid. (Caught Offside)
Bernardo Silva, 31, leikmaður Man City, hefur ekki áhuga á að fara í annað félag í úrvalsdeildinni í sumar en vill vera áfram í Evrópu. (Football Insider)
Coventry ætlar að eyða 200 milljónum punda til að undirbúa lífið í úrvalsdeildinni. Pau Torres, 29, varnarmaður Aston Villa og Conor Gallagher, 26, miðjumaður Tottenham, eru á óskalistanum. (Fichajes)
AC Milan er tilbúið að leyfa portúgalska vængmanninum Rafael Leao, 26, að yfirgefa félagið en Man Utd og Baarcelona hafa áhuga. Milan vill fá um 60 milljónir evra fyrir hann. (Calciomercato)



