26.05.09 - 11:42
Magnús Már Einarsson
Diego til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus hefur keypt brasilíska snillinginn Diego frá Werder Bremen á 24,5 milljónir evra.
Juventus greindi frá þessu í dag en Diego er búinn að skrifa undir fimm ára samning við félagið.
Diego kom til Werder Bremen frá Porto árið 2006 og hefur sýnt góða takta í þýsku Bundesligunni síðan þá.
Hjá Juventus á hann væntanlega að fylla skarð Pavel Nedved en búist er við að tékkneski miðjumaðurinn leggi skóna á hilluna í sumar.
,,Þetta er rétti tíminn á ferli mínum til að taka svona mikilvægt skref og ég er sannfærður um að með Juventus muni ég ná frábærum úrslitum,\" sagði Diego.

Heimild: Reuters