Fotbolti.net
26.05.09 - 15:02
Magnús Már Einarsson

Mario Gomez til FC Bayern (Staðfest)

Gæti orðið dýrasti leikmaður Bundesligunnar

Mario Gomez til FC Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

FC Bayern hefur keypt framherjann Mario Gomez frá Stuttgart en hann gæti mögulega orðið dýrasti leikmaðurinn í sögu þýsku Bundesligunnar.
Þýskir fjölmiðlar telja að kaupverðið hljóði upp á 30 milljónir evra sem yrði met en Manchester United keypti Owen Hargreaves á 25 milljónir evra árið 2007.

,,Ég hlakka til að fara til Bayern. Þetta er sérstakt félag. Ég vil berjast um titilinn og hlakka til leika í Meistaradeildinni\" sagði Gomez á heimasíðu Bayern í dag.

Gomes skoraði 24 mörk á þessari leiktíð en koma hans eykur líkurnar á að Franck Ribery verði um kyrrt hjá Bayern.

Ribery er eftirsóttur en hann hefur beðið Bayern um að kaupa leikmenn til að styrkja hópinn. Forráðamenn Bayern hafa farið eftir því en auk Gomes þá eru ljóst að Anatoliy Tymoschuk, Ivica Olic og Alexander Baumjohann koma til Bayern í sumar.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.