26.07.08 - 15:47
Guðmundur Dagur Ólafsson
Seyi Olofinjana til Stoke (Staðfest)

Olofinjana í leik með Nígeríu

Mynd: Getty Images

Olofinjana í leik með Nígeríu

Mynd: Getty Images
Nýliðar Stoke City í ensku Úrvalsdeildinni hafa gengið frá kaupunum á nígeríska miðjumanninum Seyi Olofinjana frá Wolves fyrir 3 milljónir punda.
Þessi 28 ára gamli landsliðsmaður skrifar undir fjögurra ára samning við Stoke með það fyrir skilyrði að hann fái atvinnuleyfi sem er einungis talið vera formsatriði.
Olofinjana spilaði 147 leiki á fjögurra ára tímabili með Wolves en hann kom til liðsins frá Brann í júlí 2004 fyrir 1,7 milljónir punda.
„Seyi er frábær fengur fyrir félagið og ég er himinlifandi með að hann valdi að ganga til liðs við okkur því nokkur önnur lið í úrvalsdeildinni vildu fá hann. Hann er leikmaður sem við teljum að muni bæta hópinn hjá okkur og sýnir jafnframt metnað okkar,\" sagði Tony Pulis, stjóri Stoke.

Heimild: Sky Sports