Fotbolti.net
26.07.08 - 14:09
Guðmundur Dagur Ólafsson

Oleguer til Ajax (Staðfest)

Oleguer til Ajax (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenska félagið Ajax hefur gengið frá kaupunum á spænska varnarmanninum Oleguer frá Barcelona.
Oleguer skrifar undir þriggja ára samning við félagið með möguleika um framlengingu um eitt ár.

Ajax mun borga 2,4 milljónir punda og 1,8 milljónir gætu bæst við ef Ajax nær að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu þremur árum.

Þessi 28 ára gamli varnarmaður ákvað að yfirgefa Barcelona eftir að hafa fengið fá tækifæri á undanförnum árum.

Hann mun koma í staðinn fyrir John Heitinga sem yfirgaf Ajax í sumar og gekk til liðs við Atletico Madrid.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.