Fotbolti.net
26.07.08 - 18:07
Magnús Már Einarsson

Brad Friedel til Aston Villa (Staðfest)

Brad Friedel til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur keypt markvörðinn Brad Friedel frá Blackburn Rovers en talið er að kaupverðið hljóði upp á um það bil tvær milljónir punda.
Þessi 37 ára gamli Bandaríkjamaður hefur gert þriggja ára samning við Villa.

Blackburn ákvað að leyfa Friedel að fara eftir að félagið gekk frá kaupum á Paul Robinson í gær.

Friedel hefur leikið 287 leiki með Blackburn en hann mun nú berjast við markvarðarstöðuna hjá Aston Villa við landa sinn Brad Guzan.

Guzan er búinn að samþykkja að ganga til liðs við Aston Villa en þessi 23 ára gamli leikmaður mun ganga frá samningum á næstunni, fái hann atvinnuleyfi.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.