Fotbolti.net
26.07.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Mikil spenna fyrir lokaumferðina

England í dag - Mikil spenna fyrir lokaumferðina
Canon

Mynd: Getty Images

Gríðarlega spennandi lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram klukkan 15:00 í dag.
Hart er barist á nokkrum vígstöðvum þar sem Chelsea, Manchester United og Leicester eru í harðri baráttu um tvö síðustu Meistaradeildarsætin.

Það flækir málin að Man Utd mætir Leicester í dag, en Chelsea á einnig afar erfiðan leik gegn lærisveinum Nuno Espirito Santo í Wolves.

Úlfarnir geta tryggt sér Evrópusæti með sigri gegn lærisveinum Frank Lampard og er hægt að búast við æsispennandi viðureign.

Tottenham er að anda ofan í hálsmálið á Úlfunum þar sem aðeins eitt stig skilur liðin að í baráttunni um síðasta Evrópusætið, sjötta sæti. Sjöunda sætið fær miða í Evrópudeildina ef Arsenal mistekst að vinna Chelsea í úrslitaleik FA bikarsins.

Þá er fallbaráttan einnig spennandi þar sem Watford, Aston Villa og Bournemouth berjast um eitt laust pláss í úrvalsdeildinni.

Allir leikirnir nema einn verða sýndir í beinni hjá Síminn Sport og mbl.

Þá er einn leikur á dagskrá í Championship deildinni. Þar eigast Swansea og Brentford við í fyrsta leik umspilsins um sæti í úrvalsdeild.

Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Úrvalsdeildin:
15:00 Newcastle - Liverpool (Síminn Sport)
15:00 Leicester - Man Utd (Síminn Sport 1)
15:00 Chelsea - Wolves (Síminn Sport 2)
15:00 Arsenal - Watford (Síminn Sport 3)
15:00 Everton - Bournemouth (Síminn Sport 4)
15:00 Man City - Norwich (mbl)
15:00 Crystal Palace - Tottenham (mbl)
15:00 Burnley - Brighton (mbl)
15:00 West Ham - Aston Villa (mbl)
15:00 Southampton - Sheffield Utd

Championship:
17:30 Swansea - Brentford
England í dag - Mikil spenna fyrir lokaumferðina
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.