Fotbolti.net
26.08.08 - 12:03
Magnús Már Einarsson

Lars Christian Jacobsen til Everton (Staðfest)

Lars Christian Jacobsen til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur samið við danska bakvörðinn Lars Christian Jacobsen.
Þessi 28 ára gamli leikmaður er sá fyrsti sem Everton fær í sumar en hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í gær.

Jacobsen kemur frítt til Everton en hann var á mála hjá Nurnberg í Þýskalandi á síðustu leiktíð.

Ef allt gengur að óskum ætti Jacobsen að geta leikið með Everton gegn Portsmouth á laugardaginn en honum hefur verið úthlutað treyju númer 15 hjá félaginu.

Jacobsen gæti komið beint inn í liðið þar sem Tony Hibbert verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.