Fotbolti.net
26.09.08 - 18:21
Hafliði Breiðfjörð

Jesper Tollefsen hættur með Víking (Staðfest)

Jesper Tollefsen er hættur með lið Víkings.

Jesper Tollefsen er hættur með lið Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur sendi frá sér yfirlýsingu nú rétt í þessu þar sem kemur fram að danski þjálfarinn Jesper Tollefsen sé hættur að þjálfa liðið. Tollefsen tók við Víkingi fyrir nýliðna leiktíð og og undir hans stjórn endaði liðið í fimmta sæti 1. deildar.

Hann hafði stýrt liði Leiknis síðustu tvo mánuðina í 1. deildinni á síðustu leiktíð og bjargaði liðinu þá frá falli. Víkingar féllu niður í 1. deildina á síðustu leiktíð og stefndu beint upp aftur en enduðu í 5. sætinu.
Yfirlýsing Víkings
Knattspyrnudeild Víkings og Jesper Tollefsen hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að slíta samstarfinu frá og með deginum í dag 26/09.
Var það sameiginlegt mat að sýn aðila á næstu skref fari ekki saman og var því ákveðið að slíta samstarfinu.

Jesper þakkar öllum Víkingum fyrir ánægjulegt samstarf og óskar Víkingi góðs gengis í framtíðinni

Knattspyrnudeild Víkings þakkar Jesper fyrir góða vinnu í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni

Aðilar eru sammála um að tjá sig ekki nánar í fjölmiðlum, en vísa á þessa fréttatilkynningu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.