Fotbolti.net
26.09.25 - 08:35
Elvar Geir Magnússon

Upphitunarpakki - Ólsarar og Króksarar berjast um bikar

Upphitunarpakki - Ólsarar og Króksarar berjast um bikar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld klukkan 19:15 mætast Víkingur Ólafsvík og Tindastóll frá Sauðárkróki í úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda, á hybrid grasi Laugardalsvallar. Ólafsvíkurliðið er í 2. deild en Tindastóll er í 3. deild.

MIÐASALA Á LEIKINN

Þetta er þriðja tímabilið sem þessi skemmtilega keppni, yngsta og sprækasta bikarkeppni landsins, fer fram. Víðir í Garði varð fyrst félaga til að lyfta bikarnum á Laugardalsvelli og í fyrra var það Selfoss sem fagnaði sigri gegn KFA í úrslitaleik.
60% lesenda Fótbolta.net spá því að það verði Víkingur Ólafsvík sem hampi bikarnum undir ljósum Laugardalsvallar. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem var á forsíðu.

Hvort liðið vinnur Fótbolti.net bikarinn?
40% Tindastóll (589)
60% Víkingur Ólafsvík (891)

Hér að neðan má sjá allar helstu upplýsingar fyrir leikinn

Bein textalýsing 19:15: Víkingur Ó. - Tindastóll

Upphitanir stuðningsmanna:
Frí rútuferð frá Ólafsvík og upphitun í Þróttaraheimilinu
TENGT EFNI

Frí rútuferð frá Ólafsvík og upphitun í Þróttaraheimilinu


Frí rútuferð frá Sauðárkróki og upphitun á Ölveri
TENGT EFNI

Frí rútuferð frá Sauðárkróki og upphitun á Ölveri



Dómarar leiksins:
Gunnar Freyr dæmir úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins
TENGT EFNI

Gunnar Freyr dæmir úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins



Viðtöl:
Ingó Sig fyrir úrslitaleikinn: Kæmi skemmtilega á óvart að enda markahæstur
TENGT EFNI

Ingó Sig fyrir úrslitaleikinn: Kæmi skemmtilega á óvart að enda markahæstur


Markmiðið fyrir úrslitaleikinn skýrt - „Erum ekki komnir til að bara vera þarna“
TENGT EFNI

Markmiðið fyrir úrslitaleikinn skýrt - „Erum ekki komnir til að bara vera þarna“



Bein útsending:
Úrslitaleikur Fótbolti.net í opinni dagskrá á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans
TENGT EFNI

Úrslitaleikur Fótbolti.net í opinni dagskrá á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans



Leið Víkings í úrslitaleikinn
Víkingur Ólafsvík tók á móti Elliða í 32-liða úrslitum í júní og vann þar þægilegan 6-1 sigur þar sem Ingólfur Sigurðsson skoraði þrennu, Kwame Quee tvö og Ingvar Freyr Þorsteinsson eitt.

Í 16-liða úrslitum vannst svo 3-1 sigur gegn Reyni Sandgerði. Asmer Begic kom Ólsurum yfir en Reynismenn jöfnuðu fyrir hlé. Ellert Gauti Heiðarsson kom Víkingum aftur í forystu á 79. mínútu og í uppbótartíma skoraði Ingvar Freyr.

Það var spennandi leikur þegar KFA fékk Víking Ólafsvík í heimsókn í 8-liða úrslitum. Staðan var 2-2 eftir 90 mínútur og 3-3 eftir 120 mínútur. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni en með því að smella hér má lesa nánar um þann leik.

Það var svo aftur hádramatík í undanúrslitunum þar sem staðan var 3-3 eftir venjulegan leiktíma gegn Gróttu. Ekkert var skorað í framlengingu og aftur unnu Ólsarar í vítakeppni en hér má lesa nánar um þann leik.

Leið Tindastóls í úrslitaleikinn
Tindastóll hefur leikið á heimavelli í öllum umferðum keppninnar hingað til og vann 2-0 sigur gegn Árborg í 32-liða úrslitum en Svetislav Milosevic og Kolbeinn Tumi Sveinsson skoruðu mörkin.

Tindastóll sigraði svo Þrótt Vogum 3-2 í mjög fjörugum leik í 16-liða úrslitum þar sem Svetislav Milosevic, Jóhann Daði Gíslason og Arnar Ólafsson skoruðu fyrir Tindastól.

Tindastóll sigldi örugglega í gegnum 8-liða úrslitin með 4-1 sigri gegn KFG. Sverrir Hrafn Friðriksson skoraði tvívegis og auk þess skoruðu Arnar Ólafsson og Jóhann Daði Gíslason.

Í undanúrslitunum var svo þessi margumtalaði grannaslagur gegn Kormáki/Hvöt. Fjögur mörk, fjögur rauð spjöld, tvær vítaspyrnur og mikill hiti í 3-1 sigri Tindastóls þar sem Manuel Ferriol skoraði þrennu.
Víkingur Ólafsvík er sigurstranglegra liðið fyrir kvöldið.

Víkingur Ólafsvík er sigurstranglegra liðið fyrir kvöldið.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Stólarnir eru stemningsmenn.

Stólarnir eru stemningsmenn.

Canon

Mynd: Sigurður Ingi Pálsson

Upphitun fyrir úrslit Fótbolti.net bikarsins: Gunnar vs Gunnar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.