26.11.08 - 15:01
Magnús Már Einarsson
Benis Krasniqi og Gunnar Ásgeirsson í Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar úr fyrstu deild hafa fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig fyrir næsta sumar.
Benis Krasniqi hefur æft með Haukum undanfarið og núna hefur hann fengið félagaskipti.
Krasniqi, sem er 27 ára varnarmaður, hefur spilað nokkra óopinbera landsleiki með Kósóvó, sem er nýbúið að fá sjálfstæði frá Serbíu. Hann er frá Besa, sem hefur orðið meistari í Kósóvó þrisvar á síðustu fjórum árum.
Krasniqi kom hingað til lands í júlí og samdi við HK en hann fékk hins vegar ekki leikheimild og kom því ekkert við sögu síðastliðið sumar.
Haukar hafa einnig fengið Gunnar Ásgeirsson til liðs við sig frá Hamar en hann hefur líkt og Benis æft með liðinu að undanförnu.
Gunnar skoraði eitt mark í sautján leikjum í annarri deildinni með Hamar í sumar en hann hefur einnig leikið með Val, Stjörnunni og Hvöt hér á landi.