26.11.09 - 07:08
Hafliði Breiðfjörð
Harpa Ásgeirsdóttir og Margrét Þórólfsdóttir í KR (Staðfest)

Stúlkurnar þrjár sem skrifuðu undir samningana.

Mynd: Vefur KR

KR tilkynnti á vef sínum í gær að þær Harpa Ásgeirsdóttir og Margrét Þórólfsdóttir séu gengnar í raðir félagsins auk þess sem Kristín Sverrisdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.
Margrét Þórólfsdóttir er að snúa aftur til félagsins eftir að hafa verið í eitt ár hjá Aftureldingu. Hún fylgir þar með Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur þjálfara liðsins aftur til baka en Guðrún var sama ár í Aftureldingu. Margrét gerði tveggja ára samning við KR en hún lék fyrst með meistaraflokki félagsins árið 2004, þá eins 14 ára gömul. Hún hefur skorað 7 mörk í 62 leikjum með KR.
Harpa Ásgeirsdóttir kemur frá Völsungi þar sem hún var fyrirliði í sumar. Hún gerir einnig tveggja ára samning við KR. Hún hefur skorað 26 mörk í 62 leikjum með Völsungi í öllum keppnum en hafði leikið með Þór/KA/KS í efstu deild árið 2003 þar sem hún skoraði eitt mark í 6 leikjum.
Kristín Sverrisdóttir hafði komið til KR frá Þrótti síðasta sumar og lék mikið með liðinu í deildinni. Samtals lék hún 24 af 31 leikjum liðsins á árinu að því segir á vef KR og skoraði í þeim eitt mark. Hún var valin leikmaður ársins í 2. flokki KR. Hún samdi við KR út næsta tímabil.

Heimild: Vefur KR