Fotbolti.net
26.11.09 - 11:51
Magnús Már Einarsson

Avram Grant tekur við Portsmouth (Staðfest)

Avram Grant tekur við Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Avram Grant hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Portsmouth en hann tekur við starfinu af Paul Hart sem var rekinn í fyrradag.
Grant, sem er 54 ára, var fyrr á árinu ráðinn yfirmaður fótboltamála hjá Portsmouth en hann mun núna taka við sem knattspyrnustjóri.

Á laugardag verður Grant í stöðu yfirmanns fótboltamála þegar að Portsmouth mætir Manchester United en hann tekur síðan við sem knattspyrnustjóri eftir helgi.

Grant þekkir vel til hjá Portsmouth því að hann kom til félagsins sem tæknilegur ráðgjafi í júní 2007.

Nokkrum mánuðum síðar fór Grant til Chelsea þar sem hann varð síðan knattspyrnustjóri eftir að Jose Mourinho yfirgaf félagið.

Grant kom Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og undir hans stjórn endaði liðið einnig í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Hjá Portsmouth bíður erfitt verkefni fyrir Grant en liðið er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir þrettán umferðir.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.