Salah lítur vel út - Gæti byrjað á morgun

Salah í fyrri leiknum gegn Napoli í vetur.

Mynd: Getty Images

<i>„Mo lítur mjög vel út,"</I> sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag aðspurður út í Mohamed Salah.
Liverpool mætir Napoli í Meistaradeildinni annað kvöld og Salah gæti snúið aftur í liðið þar eftir ökklameiðsli.
Egyptinn var á bekknum gegn Crystal Palace um helgina en hann gæti byrjað á morgun.

„Við sjáum til í dag en ég hef ekki of miklar áhyggjur af því," sagði Klopp.
Varnarmaðurinn Joel Matip er ennþá fjarverandi vegna hnémeiðsla en hann fer í skoðun í vikunni þar sem staðan kemur betur í ljós.