Spænski kantmaðurinn Pedro rennur út af samningi hjá Chelsea í sumar og ekki er spurning hvort hann fari frá félaginu heldur hvenær.
Hinn 32 ára gamli Pedro hefur fengið tilboð frá Inter Miami, nýju félagi David Beckham í MLS-deildinni. Hann er einnig með tilboð frá Kína og heimalandinu Spáni.
Pedro hefur unnið 26 titla á ferlinum með Chelsea, Barcelona og spænska landsliðinu en hann er ekki ofarlega í röðinni hjá Frank Lampard, stjóra Chelsea.

Félagaskiptaglugginn í Evrópu lokar á föstudag en Pedro á áfram möguleika í febrúar til að fara til Bandaríkjanna eða Kína.
Þá gæti hann einnig samið við félag á Spáni næsta sumar en þrjú börn hans eru búsett þar í landi ásamt fyrrum eiginkonu hans.
Athugasemdir