27.02.10 - 12:57
Magnús Már Einarsson
Lars Lagerback tekur við Nígeríu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback, fyrrum landsliðsþjálfari Svía, hefur verið ráðinn þjálfari Nígeríu.
Lagerback var tekinn fram yfir Glenn Hoddle og Sven-Goran Eriksson sem fóru einnig í starfsviðtal hjá nígeríska knattspyrnusambandinu.
Lagerback hefur skrifað undir fimm mánaða samning við Nígeríu og því mun hann stýra liðinu á HM í sumar.
Síðastliðið haust hætti Lagerback sem þjálfari Svía en hann hafði stýrt liðinu frá því árið 2000, fyrst ásamt Tommy Soderberg.
Lagerback mun horfa á vináttuleik Nígeríu og Kongó á miðvikudag og í kjölfarið flytur hann síðan til Nígeríu.