Fotbolti.net
27.02.10 - 20:18
Hafliði Breiðfjörð

Raheem Sterling til Liverpool (Staðfest)

Frá Anfield heimavelli Liverpool.

Frá Anfield heimavelli Liverpool.

Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Liverpool gekk í dag frá samningum við Raheem Sterling, 15 ára gamlan leikmann QPR en kaupverð var ekki gefið upp.
Sterling hefur enn ekki leikið meistaraflokksleik en fjöldi stórra félaga voru á eftir honum. Þeirra á meðal voru Manchester United, Manchester City, Arsenal og Fulham en Liverpool hafði betur en þau öll og mun hefja æfingar með akademíu félagsins í Kirby.

,,Árangu r akademíu okkar skipta öllu máli svo félagið sé áfram á uppleið og við höfum gert það ljóst að við munum fjárfesta í framúrskarandi hæfileikamönnum,\" sagði Christian Purslow framkvæmdastjóri Liverpool.

,,Raheem er mjög spennandi ungur enskur leikmaður sem hefur verið undir smásjá margra annarra stórra félaga og ég er hæstánægður með að hann komi til okkar. Frank McParland (yfirmaður akademíunnar) og starfsfólk hans hafa unnið frábært starf í að fá hann til Liverpool.\"

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.