27.02.12 - 12:38
Daníel Freyr Jónsson
Mahamadou Diarra til Fulham út tímabilið (Staðfest)

Mahamadou Diarra í leik með Real Madrid.

Mynd: Getty Images

Mahamadou Diarra í leik með Real Madrid.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Mahamadou Diarra hefur samið um að leika með Fulham út tímabilið. Þessi fyrrverandi miðjumaður Real Madrid hefur verið án félags síðan hann fór frá Monaco síðasta sumar.
Real Madrid borgaði Lyon 22 milljónir punda fyrir Diarra sumarið 2006. Hann fór síðan frítt til franska liðsins Monaco í janúar í fyrra en fór frá félaginu þegar það féll úr efstu deild síðasta sumar.
Diarra, sem er 30 ára, bíður nú atvinnuleyfis á Englandi áður en hann getur hafið leik með Fulham.
Diarra, sem er 30 ára, bíður nú atvinnuleyfis á Englandi áður en hann getur hafið leik með Fulham.
Heimild: Sky Sports
