Fotbolti.net
27.02.12 - 14:28
Hafliði Breiðfjörð

Brett Maron í Val (Staðfest)

Brett og Þórdís berjast um byrjunarliðssætið hjá Val í sumar

Brett Maron er að ganga í raðir Vals en hún lék síðast hér á landi sumarið 2008 með Aftureldingu.

Brett Maron er að ganga í raðir Vals en hún lék síðast hér á landi sumarið 2008 með Aftureldingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Bandaríski markvörðurinn Brett Maron er gengin til ilðs við bikarmeistara Vals en þetta staðfesti Gunnar Borgþórsson þjálfari liðsins við Fótbolta.net í dag.
Þórdís María Aikman er eini markvörðurinn hjá Val og hefur því varið mark liðsins í öllum meistaraflokksleikjum liðsins, sem og 2. flokki og er auk þess í U19 ára landsliði kvenna.

Brett Maron spilaði með Aftureldingu sumarið 2008 og var þá með bestu markvörðum deildarinnar. Hún fór þaðan til Kristianstad í Svíþjóð og snýr nú aftur til Íslands til að leika með Val.

Brett mun koma hingað til lands um miðjan apríl og ekki er ljóst hvort hún nái að klára tímabilið með Val. Hún mun koma til með að berjast við Þórdísi um markmannsstöðuna í sumar. Þegar Þórdís er í verkefnum með U19 ára landsliðinu hefði Valur ekki haft neinn markvörð og því var ákveðið að bæta við öðrum.

,,Þórdís er klárlega framtíðarmarkvörður Vals og gæti allt eins spilað í sumar haldi hún áfram á sömu braut. Brett er fengin sem samkeppni um stöðuna og til þess að Valur hafi tvo markmenn ef eitthvað kemur uppá,\" sagði Gunnar við Fótbolta.net í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.