27.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Albert Högni, Björgvin Karl og Ómar Karl til Noregs (Staðfest)

Albert Högni Arason (til vinstri) er genginn í raðir MK.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Albert Högni Arason og Ómar Karl Sigurðsson úr Haukum og Björgvin Karl Gunnarsson, leikmaður Hattar, eru allir á leið til Mandalskameraten sem leikur í norsku 2.deildinni.
Leikmennirnir hafa allir samið við MK og munu þeir halda utan næstkomandi mánudag.
Albert er varnar og miðjumaður en hann lék með Njarðvík á síðustu leiktíð. Hann lék með Haukum árið 2006 og kom svo aftur til liðsins síðastliðið haust.
Ómar Karl er miðju og sóknarmaður en hann hefur leikið með Haukum undanfarin ár. Á síðustu leiktíð skoraði hann eitt mark í fjórtán leikjum í fyrstu deildinni.
Björgvin Karl er varnarmaður en hann hefur leikið með Hetti undanfarin ár. Árið 2005 lék Björgvin með Fjarðabyggð en hann hefur einnig leikið með Hvöt hér á landi.