27.03.09 - 07:38
Hafliði Breiðfjörð
Linda Rós, Sonja Björk og Dagbjört til FK Donn (Staðfest)

Sonja Björk Jóhannsdóttir í leik með Hetti í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrjár íslenskar knattspyrnukonur, Sonja Björk Jóhannsdóttir, Linda Rós Þorláksdóttir og Dagbjört Agnarsdóttir eru gengnar í raðir norska 1.deildar liðsins FK Donn sem er statt í Kristiansand.
Sonja Björk Jóhannsdóttir er 24 ára gömul og fer til félagsins frá Hetti á Egilsstöðum. Hún vakti athygli í byrjun síðasta árs þegar Sigurður Ragnar Eyjólfsson kallaði hana til æfinga hjá íslenska landsliðinu eftir að hafa séð hana æfa með karlaliði félagsins á snævi þöktum velli.
Hún hefur ýmist leikið með Hetti og Fjarðabyggð í 1. deild kvenna og á að baki 49 leiki og hefur skorað í þeim 30 mörk í deild og bikar.
Linda Rós Þorláksdóttir er 21 árs. Hún gekk í raðir uppeldisfélags síns, Hauka frá Keflavík í vetur en áður hafði hún leikið með Val. Hún átti fast sæti í vörninni hjá Keflavík í fyrrasumar og lék alla leiki liðsins og skoraði í þeim eitt mark. Hún hefur leikið 11 leiki með U19 ára landsliði Íslands.
Dagbjört Agnarsdóttir er líka 21 árs. Hún hefur allan sinn feril leikið með Haukum þar sem hún hóf meistaraflokksferilinn árið 2003 er liðið hét Þróttur/Haukar. Samtals hefur hún leikið 57 leiki fyrir félagið og skorað í þeim ellefu mörk.